Morgunganga á Esju 12-03-2010
12.3.2010 | 17:14
Þá er þessu Esju verkefninu lokið í bili. Síðasta gangan var farin í morgun og allir mætti, hressir og kátir með nýjar húfur á kollinum. Eftir upphitun og axlanudd (sem er besta hópefli sem ég tekið þátt í) var haldið af stað og gengið jafnt og þétt upp að skilti númer 4. Meðalhraðinn var ríflega 3 km/klst í þessari ferð. Eftir smá pásu var aftur gengið niður að Esjustofu og haldið til vinnu. Þetta var mjög skemmtilegt átak með skemmtilegu fólki sem er á hraðri uppleið, því hljótum við að sjást aftur á einhverjum fjallaslóðanum. Takk kærlega fyrir mig!
Sorry! engar myndir úr þessari ferð.
Ath! upplýsingar í töflunni eru úr GPS tækinu mínu.
Einnig er hægt að hlaða niður korti af gönguleiðinni í PDF skjali hér að neðan.
Fjall: | Esja - frá Esjustofu upp að skilti nr. 4 |
Dagur: | fös 12.03.2010 |
Upphaf kl: | 06:33 |
Hæsta punkti náð kl: | 07:20 |
Uppgöngutími: | 47 mín |
Göngulok kl: | 07:57 |
Göngutími alls: | 1 klst 24 mín |
Upphafshæð GPS: | 17 m |
Mesta Hæð GPS: | 389 m |
Hækkun: | 372 m |
Göngulengd - meðalhraði | 4,8 km - 3 km/klst |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.